Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur þessa dagana á æfingamóti á Spáni.
Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson er þjálfari liðsins og Hallbera Guðný Gísladóttir, sem hóf feril sinn með ÍA, er í stóru hlutverki að venju í liðinu en hún leikur með Val.
Æfingamótið ber nafnið Pinatar Cup og mótherjar Íslands eru Norður-Írland, Skotland og Úkraína.
Ísland lagði Norður-Írland í fyrsta leiknum sem fram fór í gær. Dagný Brynjarsdóttir skoraði eina mark leiksins.
Ísland mætir liði Skotlands á laugardaginn í öðrum leik sínum á þessu móti.
Hópurinn er þannig skipaður:
- Sandra Sigurðardóttir | Valur | 27 leikir
- Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Fylkir
- Ingibjörg Valgeirsdóttir | KR
- Hallbera Guðný Gísladóttir | Valur | 109 leikir
- Glódís Perla Viggósdóttir | FC Rosengard | 81 leikur, 6 mörk
- Berglind Rós Ágústsdóttir | Fylkir
- Ingibjörg Sigurðardóttir | Djurgarden | 27 leikir
- Guðný Árnadóttir | Valur | 5 leikir
- Anna Rakel Pétursdóttir | IK Uppsala | 6 leikir
- Natasha Anasi | Keflavík
- Elísa Viðarsdóttir | Valur | 36 leikir
- Sara Björk Gunnarsdóttir | Wolfsburg | 129 leikir, 20 mörk
- Dagný Brynjarsdóttir | Selfoss | 85 leikir, 25 mörk
- Alexandra Jóhannsdóttir | Breiðablik | 5 leikir, 1 mark
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | Utah Royals | 68 leikir, 9 mörk
- Rakel Hönnudóttir | Breiðablik | 100 leikir, 9 mörk
- Sigríður Lára Garðarsdóttir | FH | 18 leikir
- Agla María Albertsdóttir | Breiðablik | 27 leikir, 2 mörk
- Fanndís Friðriksdóttir | Valur | 106 leikir, 17 mörk
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir | AC Milan | 44 leikir, 4 mörk
- Elín Metta Jensen | Valur | 46 leikir, 14 mörk
- Hlín Eiríksdóttir | Valur | 12 leikir, 3 mörk
- Svava Rós Guðmundsdóttir | Kristanstads DFF | 19 leikir, 1 mark