Akrafjallsvegi verður lokað í kvöld kl. 20.00, mánudaginn 9. mars og stendur lokunin yfir fram til kl. 20.00 þriðjudaginn 10. mars.
Veginum verður lokað vegna vinnu á endurnýjun aðveitu frá Deildartungu, umferð verður beint suður með Akrafjalli á meðan framkvæmdir standa yfir.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2018/09/Loftmyndir-Akranes-Baldur-Ólafsson-2018-2-1132x670.jpg)
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Merkingar áætlun er sýnd hér að neðan.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/03/Screen-Shot-2020-03-09-at-11.47.44-AM-1024x966.png)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/03/Screen-Shot-2020-03-09-at-11.47.36-AM.png)