Árgangur 1982 á Akranesi hefur sett af stað söfnun til þess að styðja við bakið á ungum Skagamanni sem missti móður sína í hörmulegu slysi þann 14. febrúar s.l.
Ester Ósk Liljan Óskarsdóttir, sem var fædd árið 1982, lést í slysinu.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2020/03/91445923_1699131246910711_7951655572246364160_n-copy-1132x670.jpg)
Vinir og jafnaldrar Esterar Óskar hafa stofnað söfnunarreikning í formi framtíðarreiknings.
Styrkurinn er ætlaður syni Esterar og verður lagður inn á lokaðan framtíðarreikning á hans nafni, sem mun nýtast honum sem aðstoð inn í lífið eftir að hann verður 18 ára gamall.
Þeir sem vilja sína samhug og leggja söfnuninni lið geta lagt frjáls framlög inn á eftirfarandi reikning á nafni Arnars Óla, syni hennar;
Banki: 0552-18-000236
kt. 160805-3070
„Með von um góðar undirtektir og samfélagslega góðvild,“ segir í tilkynningu frá árgangi 1982.