Gamla Kaupfélagið heldur áfram að aðlaga reksturinn að breyttum tímum vegna ástandsins í þjóðfélaginu.
Félagarnir sem reka staðinn hafa tekið þá ákvörðun að einbeita sér alfarið að „Take away þjónustu og heimsendingum“ – allavega fram yfir páskahátíðina.
Veitingasalnum hefur því verið lokað tímabundið.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2020/03/90909243_2558147844437355_2845581224200634368_o-1132x670.jpg)
Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu frá Gamla Kaupfélaginu og hér fyrir neðan er hlekkur til að panta á netinu hjá GK.
⭐️ Take away og heimsendingar ⭐️
– lokum veitingasalnum fram yfir páska og tökum þá stöðuna 😢
Á meðan sinnum við einstaklingum og fyrirtækjum með hádegismat á virkum dögum ásamt því að bjóða upp á sóttan og heimsendan mat af bistró seðli fim, fös og lau 🤗
Þetta eru skrítnir tímar en við skulum öll standa saman og passa upp á hvert og annað 🥰
Pantanir: 431-4343 og
NETPANTANIR ( nú hægt að greiða með korti á netinu ).
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2019/12/skagafrettir520stuðningurlægra.jpg)