Alls hafa 39 einstaklingar verið greindir með Covid-19 smit á Vesturlandi. Eitt nýtt smit var greint í gær og var það í Borgarnesi. Frá því á mánudag hafa aðeins tvö ný smit verið greint á Vesturlandi.
Á Akranesi eru 11 greindir með Covid-19 smit og alls eru 50 í sóttkví á Akranesi. Á Vesturlandi öllu eru 109 í sóttkví og hefur þeim fækkað um rúmlega 100 það sem af er þessari viku.