Óbreytt staða á Covid-19 smitum á Vesturlandi


Ekkert nýtt Covid-19 smit var greint í gær á Vesturlandi samkvæmt upplýsingum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu.

Alls hafa 39 smit verið greind á Vesturlandi og hefur ekkert nýtt smit verið greint frá því á Skírdag eða fimmtudaginn 9. apríl.

Á Akranesi hafa 11 Covid-19 smit verið greind, og eru 19 í sóttkví þessa stunda.

Hér fyrir neðan má sjá þróunina á Vesturlandi undanfarna daga.