„Borðar þú ekkert?“ – Pistill Unu vekur mikla athygli


„Það er aldrei í lagi að niðurlægja mannesku útaf holdarfari og ég held að þetta sé eitthvað sem margir ættu að skoða hjá sjálfum sér,“ skrifar Skagakonan Una Rakel Hafliðadóttir í pistli sem hefur vakið mikla athygli í dag á samfélagsmiðlum. Una Rakel segir m.a. að hún þurfi að svara fyrir líkamsbyggingu sína og holdarfar í hverrri einustu viku.

Pistill Unu er hér fyrir neðan en hún gaf Skagafréttum góðfúslegt leyfi til þess að birta textann.


Hæ ég heiti Una, ég er grönn, með lítil bein og hraða brennslu. Ég er heilsuhraust, borða vel og líður vel í eigin líkama. Það er þó eitt sem veldur mér sérlega mikilli vanlíðan. Það er hvað mörgum finnst þeir eiga rétt á því að setja út á holdarfar annarra. Svona er mín upplifun:

Í hverri einustu viku þarf ég að svara fyrir það afhverju holdarfar mitt er eins og það er. Vinsælasta spurningin sem ég fæ er þegar ég er spurð út í það hvort ég borði ekkert, sem ég svara yfirleitt eins og asni í baklás “jú eg borða mjög mikið” sem er engin lygi og þeir sem þekkja mig vita það.
Ég er kölluð horrengla, tannstöngull, spurð hvort ég sé að detta í sundur og öðrum særandi orðum. Ég man ekki eftir einni heilli viku þar sem ég hef ekki fengið að heyra a.m.k.eitthvað af þessu og fólki virðist finnast mjög eðlilegt að kalla mig þessum orðum eða skipta sér af því hvernig ég lít út.

Það er eins og sumir átti sig ekki á því að það sé að særa með því að skipta sér af þessu og oft er eins og þau haldi að þau séu að hjálpa þér með því að sýna þér hvað þeim ofbýður útlit þitt. Í þessari viku hef ég verið spurð að því hvort ég sé að detta í sundur og samstarfsfélagi minn ákvað, eins og ekkert væri eðlilegra, að taka upp bolinn minn að öxlum til að segja mér að þetta sé nú ekki eðlilegt. Það er miðvikudagur 🙂 sjáum hvað vikan ber í skauti sér.

Nú eigum við margar flottar fyrirmyndir sem hafa upplifað mikið einelti og áreiti vegna þess hve “feitir” þeir eru, óháð heilsuhreysti. Það er að verða til mikil vitundarvakning á þessu sem er frábært skref fram á við og það væri enn betra ef hægt væri að horfa á þetta líka á hinn veginn. Ég held að þéttvaxnir og grannvaxnir upplifi nokkurn veginn sama áreiti en bara á öðruvísi hátt.

Það er aldrei í lagi að niðurlægja mannesku útaf holdarfari og ég held að þetta sé eitthvað sem margir ættu að skoða hjá sjálfum sér

Komum fram við aðra eins og við viljum að það sé komið fram við okkur. Allir miga taka pláss og allir eru frábærir á sinn hátt.