Sigurður Þór nýr eldvarnareftirlitsfulltrúi


Sigurður Þór Elísson hefur verið ráðinn eldvarnareftirlitsfulltrúi hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar, Akraneskaupstað. Alls bárust fjórar umsóknir um starfið.

Þetta kemur fram á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

Sigurður hefur starfað í slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar (SAH) frá árinu 2002.

Hann hlaut löggildingu sem slökkviliðsmaður árið 2008 og hefur undanfarin ár starfað sem annar af tveimur þjálfunarstjórum liðsins.

Sigurður Þór hefur frá 2018 starfað við hlið slökkvistjóra SAH við m.a. eldvarnareftirlit og haldið utan um æfingar og bakvaktir liðsins ásamt nýliðamóttöku. Hann hefur komið að endurmenntun atvinnubílstjóra, sinnt ökukennslu, verið í byggingareftirliti hjá Vinnueftirlitinu og sérfræðingur í forvörnum fyrirtækja hjá VÍS. Þá hefur Sigurður Þór verið slökkviliðs og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði Akureyrar.

Sigurður Þór lauk sveinsprófi í húsasmíði árið 2004 og hefur sótt fjölda námskeiða um brunavarnir og slökkvistörf. Hann lauk löggildinu sem sjúkraflutningamaður árið 2011.

Umsjón með ráðningunni höfðu slökkviliðsstjóri, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hjá Akraneskaupstað. Hagvangur veitti ráðgjöf við ráðningaferlið.