Skagamaðurinn Helgi Laxdal Aðalgeirsson er í karlalandsliðinu í hópfimleikum.
Helgi og félagar hans úr landsliðinu verða með sýningar um allt land á næstunni þar sem þeir munu sýna listir sínar, og kynna fimleikaíþróttina í leiðinni.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2020/07/pjimage-5-1000x670.jpg)
Fimleikahringur þeirra um landið hefst í dag í Íþróttahúsinu við Vesturgötu, og hefst sýningin kl. 14.00.
Eftir sýninguna gefst gestum tækifæri til þess að prófa fimleika undir handleiðslu landsliðsmanna.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/07/101755936_10220240757103924_7872664489475009678_n.jpg)