Virkilega leiðinlegt að vera í þessari stöðu – Valdís Þóra keppir ekki á Íslandsmótinu


Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, verður ekki með á Íslandsmótinu í golfi 2020 vegna meiðsla. Valdís Þóra hefur glímt við meiðsli í baki undanfarin misseri en hún bíður eftir niðurstöðum frá læknum varðandi framhaldið hjá sér.

Valdís Þóra hefur þrívegis fagnað sigri á Íslandsmótinu í golfi, 2009, 2012 og 2017.

„Ég á eftir að hitta sérfræðing varðandi framhaldið og nákvæm greining á stöðunni liggur ekki enn fyrir. Ég sló ekki golfhögg í tvær vikur og þegar ég prófaði að slá á ný fékk ég verkinn á ný. Þetta lýsir sér þannig að þegar ég þarf að snúa líkamanum af krafti í högg sem þurfa að fara langt þá kemur þessi verkur. Svæðið þar sem að verkurinn er virðist vera mjög viðkvæmt þegar ég sný af krafti upp á líkamann. Í samráði við fólkið í kringum mig þá ákváðum við að taka ekki þátt á Íslandsmótinu í golfi 2020. Það er virkilega leiðinlegt að vera í þessari stöðu,“ segir Valdís Þóra en hún bætir því að svo gæti farið að hún myndi ekki slá golfhögg næstu vikurnar.

Valdís Þóra í Marokkó. LET/Tristan Jones

„Svo gæti farið að ég get ekki slegið golfhögg af krafti næstu vikurnar og jafnvel langt inn í haustið – og það er ekki þess virði að taka áhættuna að halda áfram svona verkjuð. Ég ætla því að bíða eftir greiningu hjá sérfræðingi, fá rétta meðhöndlun, og byggja allt upp aftur. Ég hef tíma til þess núna á meðan ekki er verið að keppa á LET Evrópumótaröðinni. Ég þarf að vera klár þegar nýtt tímabil hefst í janúar á næsta ári,“ segir Valdís Þóra við Skagafréttir.