Akraneskaupstaður óskaði nýverið eftir tilboðum í verkefni sem tengist uppbyggingu göngustíga meðfram strandlengjunni við Krókalón. Þrjú tilboð bárust en kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var tæplega 26,2 milljónir kr.
Eins og áður segir bárust þrjú tilboð í verkefnið og voru þau öll talsvert yfir kostnaðaráætlun. Skóflan hf. átti lægst tilboðið sem var tæplega 6,6 milljónum kr. yfir áætlun.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2020/08/Screen-Shot-2020-08-25-at-9.09.31-PM-1132x670.png)
Skóflan hf., 32.860.000 kr.
Íslandsgámar ehf., 51.934.840 kr
Þróttur ehf.,35.471.700 kr.
Kostnaðaráætlunin var upp á 26.146.000 kr.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á síðasta fundi sínum að fela sviðstjóra að semja við lægstbjóðanda.