Tvö tilboð bárust í 1. hluta endurgerðar lóðar við Brekkubæjarskóla


Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nýverið að fela umhverfisstjóra að semja við lægstbjóðanda í verkefnið Brekkubæjarskóli-endurgerð lóðar-áfangi 1.

Nánar hér:

Tvö tilboð bárust í verkið og var kostnaðaráætlun 11,3 milljónir kr.

SE Garðyrkja ehf. bauð tæplega 16 milljónir kr. í verkefnið og BÓB sf vinnuvélar buðu rétt tæplega 23,7 milljónir kr.

Lægra tilboðið er því rétt um 4,7 milljónum kr. yfir kostnaðaráætlun.

http://localhost:8888/skagafrettir/2020/07/13/lod-brekkubaejarskola-faer-nytt-utlit-svona-eru-tillogurnar/