Íbúakönnun landshlutanna er á vegum allra landshlutasamtaka á landsbyggðinni, atvinnuþróunarfélaga og Byggðastofnunar.
Könnunin er ætluð öllum íbúum sem náð hafa 18 ára aldri.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2019/02/Loftmyndir-Akranes-Baldur-Ólafsson-2018-5-1132x670.jpg)
Markmiðið er að kanna hver staða íbúanna er á vinnumarkaði, mat þeirra á búsetuskilyrðum, framtíðarvæntingar og almenn líðan – allt til að geta gert gott samfélag enn betra.
Vífill Karlsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi segir að skoðanir allra íbúa Íslands skikpti miklu máli. Þar sem að horft er til þessarar könnunar í stefnumótun hins opinbera.