Lögreglan á Vesturlandi vekur athygli á tilmælum vegna aukins fjölda Covid-19 smita



Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ítreka tilmæli sín vegna aukins fjöldi smita einkum á höfuðborgarsvæðinu, vegna Covid-19 síðustu daga og aukið hafa líkur á veldisvexti í faraldrinum. Lögreglan á Vesturlandi vekur athygli á þessum tilmælum í færslu á fésbókinni.

Þó þeim sé sérstaklega beint til fólks á höfuðborgarsvæðinu eiga þau að miklu leiti við okkur öll.

Búast má við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga.
Tilmælin eru;

• Hvetjum alla á höfuðborgarsvæðinu til að vera eins mikið heimavið og kostur er.

• Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til.

• Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er.

• Takmörkun fjölda í búðum – einn fari að versla frá heimili ef kostur er

• Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim

• Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni.

• Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk.

• Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.

• Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.

• Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir.

Allir á höfuðborgarsvæðinu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sérstaklega vel að sér næstu vikur.