Fasteignamarkaðurinn á Akranesi hefur verið líflegur á undanförnum misserum. Fasteignaverð hefur hækkað jafnt og þétt, og hlutfallslega einna mest á Akranesi.
Í dag var glæsilegt einbýlishús við Baugalund 12 á Akranesi auglýst til sölu hjá Fasteignasölunni Valfell.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2020/10/thumb-2-1132x670.jpeg)
Eftir bestu heimildum Skagafrétta er þetta í fyrsta sinn sem einbýlishús á Akranesi er boðið til sölu á yfir 100 milljónir kr en verðið á húsinu er 107 milljónir kr.
„Akranes hefur á undanförnum árum stimplað sig inn sem áhugaverður búsetukostur. Það hefur verið mikil eftirspurn eftir eignum hér á Akranesi – og fjölskyldur af höfuðborgarsvæðinu hafa í auknum mæli leitað á þetta svæði til þess að finna hentugt húsnæði. Eftir því sem ég best veit þá er þá er þessi glæsilega eign við Baugalund 12 fyrsta íbúðarhúsið á Akranesi sem er boðið til sölu á verði sem fer yfir 100 milljónir, segir Hákon Svavarsson eigandi Valfells við Skagafréttir.
Í lýsingu á eigninni á vef Valfells kemur fram að húsið er tæplega 270 fermetrar og þar af 60 fermetra bílskúr.
Hægt er að skoða eignina á vef Valfells með því að smella hér.
Einnig er stórglæsileg þrívíddarkynning á húsinu en þá kynningu er hægt að nálgast hér.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/10/thumb-3-1024x628.jpeg)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/10/thumb-2-1024x628.jpeg)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/10/thumb-1-1024x628.jpeg)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/10/thumb-1024x628.jpeg)