Tvö ný Covid-19 smit voru greind á Akranesi í gær samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Alls eru 15 í einangrun á Akranesi vegna Covid-19 og 13 til viðbótar í sóttkví. Á Vesturlandi öllu eru 19 í einangrun vegna Covid-19 og 32 eru í sóttkví.
Á landinu öllu greindust 45 innanlandssmit og 24 þeirra voru ekki í sóttkví.
Alls eru 23 einstaklingar á sjúkrahúsi og þar af þrír á gjörgæslu. Um 1800 sýni voru tekin í gær.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/10/122096314_1881811581968340_5138341041747440857_n.png)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/10/122025436_1880811028735062_4446514860886153765_n.png)