Útvarp Akraness verður á sínum stað um helgina – en allt frá árinu 1988 hefur þessi viðburður sett stóran svip á jólaundirbúning Skagamanna nær og fjær.
Það er Sundfélag Akraness sem stendur á bak við þetta verkefni sem er jafnframt ein stærsta fjáröflun félagsins.
Hér getur þú hlustað og horft á streymi frá útvarpinu.
Útvarp Akraness fékk Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar árið 2019.
Að venju verður fjölbreytt dagskrá – og má lesa meira um helstu atriðin á myndinni hér fyrir neðan.
Útsendingin fer fram á FM 95.0 og einnig á fésbókarsíðu Útvarps Akraness.
Fjáröflun félagsins felst í lestri auglýsinga og jólakveðja sem lesnar eru á hálftíma fresti allan daginn. Sundfélagið óskar eftir stuðningi úr nærsamfélaginu
Sendið línu á [email protected] eða hringið í auglýsingasímann 841 8260 til að skrá ykkur eða fá nánari upplýsingar.