Útvarp Akranes 2020 var á dagskrá um liðna helgi og gekk framkvæmdin vonum framar þrátt fyrir Covid-19.
Ástandið setti strik í reikninginn í litla útvarpsverkefni Sundfélags Akraness. Nokkrir þættir teknir upp fyrirfram af þeim sökum og einnig nokkur viðtöl.

Í tilkynningu frá Sundfélaginu segir að innreið jólanna hefjist hjá fjölmörgum Skagamönnum sömu helgi og Útvarp Akraness fer í loftið. Bakaðar eru smákökur, laufabrauð steikt, jólahreingerningar hefjast undir ljúfum tónum og skemmtilegum viðtölum.
Útvarp Akranes er því einskonar skilyrt áreiti jólanna fyrir marga.
Í 33 ár hefur Sundfélag Akraness séð um Útvarp Akraness sem allaf er sett í loftið fyrstu helgina í aðventu.
Útvarpið er ein af helstu fjáröflunum félagsins.
Við þökkum öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem sendu inn auglýsingar þannig tekið þátt í að styrkja innviði Sundfélagsins. Alls voru 85 fyrirtæki sem auglýstu hjá okkur.
Einnig þökkum við Símenntunarmiðstöð Vesturlands fyrir lánið á húsnæðinu en vel hefur farið um okkur hér við Akratorg.
Alls voru 19 þættir sendir í loftið um s.l. helgi og með þeim 33 þáttastjórnendur auk nemenda úr í grunnskólunum á Akranesi. Við þökkum öllu þessu fólki þeirra framlag.
Eins og áður segir óvenju fáir gestir vegna Covid-19.
Að halda úti Útvarpi eins og þessu er ógjörningur án okkar frábæru tæknimanna sem jafnframt eru þáttagerðarmenn með meiru.
Óli Palli og Óli Valur snillingar og sérfræðingar – takk fyrir ykkar frábæru þjónustu, – ENN EITT ÁRIÐ!
Án ykkar væri útvarp Akranes ekki til.
Sundfélag Akraness þakkar fyrir góða hlustun í ár og við hlökkum til að útvarpa til ykkar að ári.









