Í dag var fjórði glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“.
Alls er 24 tónlistaratriði á dagskrá og verður einn gluggi opnaður kl. 9 á hverjum morgni fram að jólum.
Mikil leynd hvílir yfir flytjendum en atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.
Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru kynnar í þessu verkefni. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.
Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi.
Hlynur Ben opnaði dagatalið með fyrstu innkomunni 1. des.
Heiðrún Hámundadóttir var önnur í röðinni 2. des.
Systkinin Ylfa og Hallur voru þriðju í röðinni 3. desember.