Hanna Þóra opnaði þriðja síðasta gluggann í „Skaginn syngur inn jólin“

Í dag var tuttugasti og annar glugginn af alls tuttugu og fjórum opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Þetta skemmtilega verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi.

Eins og áður segur er 24 tónlistaratriði á dagskrá og er einn gluggi opnaður kl. 9 á hverjum morgni fram að jólum.

Mikil leynd hvílir yfir flytjendum en atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.

Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, söngkona, syngur í dag lagið Jól eftir Jórunni Viðar og texta eftir Stefán frá Hvítadal. Rut Berg leikur á þverflautu í þessu lagi.

Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru kynnar í þessu verkefni. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.

Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hann er einnig í Húsbandinu sem spilar undir hjá tónlistarfólkinu.

Auk hans eru Pétur Valgarð Pétursson (gítar), Sigurþór Þorgilsson (bassi) og Þorvaldur Kári Ingveldarson (trommur).

21. desember:

20. desember:

19. desember:

18. desember:

17. desember:

16. desember:

15. desember:

14. desember:

13. desember:

12. desember:

11. desember:

10. desember:

9. desember:

8. desember:

7. desember:

6. desember:

5. desember:

4. desember:


3. desember:

2. desember:

1. desember: