Sr. Jónína kjörin sem sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju

Kjörnefnd Hafnarfjarðarprestakalls í Kjalarnessprófastsdæmi valdi Sr. Jónínu Ólafsdóttur, prest á Akranesi, sem nýjan sóknarprest í Hafnarfjarðarprestakalli. Frá þessu er greint á vef Þjóðkirkjunnar.

Solveig Lára Guðmundsdóttir, sem er starfandi biskup Íslands, hefur staðfest ráðningu Jónínu – sem mun taka til starfa á næstunni.

Jónína var ráðin í starf sem sóknarprestur í Garða – og Saurbæjarprestakalli í febrúar á síðasta ári.

http://localhost:8888/skagafrettir/2020/02/18/jonina-og-thora-kjornir-prestar-vid-garda-og-saurbaejarprestakall/

Sr. Jónína Ólafsdóttir er fædd á Egilsstöðum 1984 og ólst upp í Þingeyjarsýslu frá fimm ára aldri. Hún lauk BA-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 2008 og mag. theol.-prófi 2017, diplómaprófi í sálgæslu 2019 og vinnur nú að lokaritgerð til MA-prófs í guðfræði á sviði kristinnar hjónabandssiðfræði.

Sr. Jónína hefur starfað sem aðstoðarmaður dr. Arnfríðar Guðmundsdóttur, prófessors. Þá hefur hún fengist við margvísleg störf í söfnuðum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðin tólf ár.

Sr. Jónína var settur prestur í Dalvíkurprestakalli frá 1. október 2019 til 31. mars 2020. Hún var vígð 11. ágúst 2019. Hún var ráðin í febrúar á síðasta ári sem prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi.

Eiginmaður sr. Jónínu er Eggert Þ. Þórarinsson, forstöðumaður í Seðlabanka Íslands, og eiga þau tvö börn.
Prestakallið

Í Hafnarfjarðarprestakalli er ein sókn, Hafnarfjarðarsókn með um átta þúsund sóknarbörn. Í prestakallinu er ein kirkja, Hafnarfjarðarkirkja. Kirkjan er vel staðsett í hjarta Hafnarfjarðar og er allur aðbúnaður og aðstaða til mikillar fyrirmyndar. Gróskumikið starf er unnið innan kirkjunnar og má þarf nefna barna- og unglingastarf sem hefur verið í miklum vexti undanfarin ár.