Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í tuttugustu viku tímabilsins. Spennan fer vaxandi með hverri vikunni sem líður en Sigurður M. Sigurðsson lagði Smára Guðjónsson að velli í 19. umferð þar sem Sigurður var með 8 rétta en Smári 7 rétta.
Mótherji Sigurðar er Magnús D. Brandsson en útibússtjórinn hjá Íslandsbanka er að eigin sögn þrælgóður tippari. Magnús er dyggur stuðningsmaður ÍA og hefur verið virkur í getraunastarfi KFÍA um margra ára skeið.
Einar Brandsson er í skipstjórinn brúnni í getraunastarfi KFÍA og segir hann að nú sé þörf á að styrkja klúbbin sinn og ekki verra ef því fylgir bónus en þessa helgina er um 200 millur fyrir 13 rétta.
Getraunastarfið hjá KFÍA verður ekki aðeins í rafrænum þar sem að tilslakanir í samkomuhaldi gerir hópnum það kleift að hittast á tímabilinu 11-13 á Jaðarsbökkum.
Þeir sem ekki komast en vilja senda inn raðir í gegnum kerfið hjá klúbbnum geta sent raðir (fyrir kl 12.00 laugardag) á Einar Brandsson ([email protected] eða á massenger á fb) og verða þær þá settar inn í kerfið.
Þeir sem tippa í gegnum Getraunakerfi KFÍA styrkja okkar félag aukalega þar sem hærra hlutfall af hverri röð rennur beint til KFÍA heldur en ef tippað er á 1×2.is eða á sölustöðum.
Benedikt Valtýsson er sá sem er efstur í þessari áskorun en hann var samfellt með í sjö vikur – sem er besti árangurinn í áskoruninni til þessa.
Getraunakeppnin er með þeim hætti að keppendur fylla út 96 raðir í Enska boltanum. Sá sem fær fleiri rétta er sigurvegari og fær nýjan mótherja í næstu umferð. Ef jafnt er hjá keppendum þá halda þeir báðir áfram í næstu umferð.
Úrslit úr fyrri umferðum:
1. Sigmundur Ámundason – Kristleifur Skarphéðinn Brandsson.
2. Sigmundur Ámundason – Jón Örn Arnarson.
3. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir. – jafntefli.
4. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.- jafntefli.
5. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.
6. Jón Örn Arnarson – Örn Gunnarsson.
7. Örn Gunnarsson – Sigurður Páll Harðarson.
8. Örn Gunnarsson – Benedikt Valtýsson. – jafntefli.
9. Örn Gunnarsson – Benedikt Valtýssson.
10. Benedikt Valtýssson – Þuríður Magnúsdóttir.
11. Benedikt Valtýsson – Arnbjörg Stefánsdóttir
12. Benedikt Valtýsson – Jón Gunnlaugsson.
13. Benedikt Valtýsson – Viktor Elvar Viktorsson. – jafntefli.
14. Benedikt Valtýsson – Viktor Elvar Viktorsson.
15. Viktor Elvar Viktorsson – Óskar Rafn Þorsteinsson.
16. Óskar Rafn Þorsteinsson – Smári Guðjónsson.
17. Smári Guðjónsson – Gísli Gíslason.
18. Smári Guðjónsson – Gísli Gislason.
19. Smári Guðjónsson – Sigurður M. Sigurðsson.
20. Sigurður M. Sigurðsson – Magnús D. Brandsson.
Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur í gegnum tíðina verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum á Akranesi. Vegna aðstæðna í samfélaginu hefur tippklúbbur KFÍA lagt áherslu á að nýta tæknina í getraunastarfinu og er það leikur einn að taka þátt og styðja við bakið á KFÍA á sama tíma.
Magnús spáir þannig fyrir leiki helgarinnar:
Sigurður M. spáir þannig fyrir leiki helgarinnar:
Í lok tímabilsins fer fram keppni á milli þeirra tippsérfræðingar sem sigrað hafa í flestum viðureignum eða náð bestum árangri. Nánari útfærsla á úrslitakeppninni verður birt síðar.