Valgarður Lyngdal Jónsson mun leiða framboðslista Samfylkingarinnar í komandi Alþingiskosningum, Jónína Björg Magnúsdóttir skipar annað sætið og Sigurður Orri Kristjánsson er í þriðja sæti. Kjördæmisþing Samfylkingarinnar fór fram um s.l helgi þar sem að kosið var um hvernig framboðslistinn yrði skipaður.
Valgarður og Jóinína eru bæði búsett á Akranesi. Valgarður er forseti bæjarstjórnar Akraness en Jónína hefur setið á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Guðjón S. Brjánsson – sem ákvað nýverið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs.
Í Alþingiskosningunum árið 2017 fékk Samfyllkingin einn mann kjörinn á þing, Guðjón S. Brjánsson. Í þeim kosningum vantaði Samfylkingunni tæplega 1500 atkvæði til að koma öðrum þingmanni inn. Flokkurinn fékk 1681 atkvæði í síðustu kosningum til Alþingis og var með 10% fylgi í NV-kjördæmi árið 2017. Alls sitja 7 þingmenn úr NV-kjördæmi á Alþingi.
Úrslit úr NV-kjördæmi 2017
Úrslit | Atkvæði | Hlutfall | Þingm. |
Björt framtíð | 135 | 0,78% | 0 |
Framsóknarflokkur | 3.177 | 18,42% | 2 |
Viðreisn | 423 | 2,45% | 0 |
Sjálfstæðisflokkur | 4.233 | 24,54% | 2 |
Flokkur fólksins | 911 | 5,28% | 0 |
Miðflokkurinn | 2.456 | 14,24% | 1 |
Píratar | 1.169 | 6,78% | 0 |
Samfylkingin | 1.681 | 9,74% | 1 |
Vinstrihreyfingin grænt fr. | 3.067 | 17,78% | 1 |
Gild atkvæði samtals | 17.252 | 100,00% | 7 |
Auðir seðlar og ógildir | 582 | 3,26% | |
Ógildir seðlar | 38 | 0,21% | |
Greidd atkvæði samtals | 17.872 | 83,04% | |
Á kjörskrá | 21.521 |
Kjörnir alþingismenn: | ||
1. Haraldur Benediktsson (D) | 4.233 | |
2. Ásmundur Einar Daðason (B) | 3.177 | |
3. Lilja Rafney Magnúsdóttir (V) | 3.067 | |
4. Bergþór Ólason (M) | 2.456 | |
5. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir (D) | 2.117 | |
6. Guðjón Brjánsson (S) | 1.681 | |
7. Halla Signý Kristjándsdóttir (B) | 1.589 | |
Næstir inn | vantar | |
Bjarni Jónsson (V) | 111 | |
Eva Pandóra Baldursdóttir (P) | 420 | |
Teitur Björn Einarsson (D) | 533 | |
Magnús Þór Hafsteinsson (F) | 678 | |
Sigurður Páll Jónsson (M) | 722 | landskjörinn |
Gylfi Ólafsson (C) | 1.166 | |
Guðlaug Kristjánsdóttir (A) | 1.454 | |
Arna Lára Jónsdóttir (S) | 1.497 |