Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fékk um 60% atkvæða í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Þórdís Kolbrún er varaformaður flokksins sem fékk tvo þingmenn kjörna í síðustu Alþingiskosningum. Haraldur Benediktsson sóttist einnig eftir efsta sæti listans en hann fékk 35% atkvæða. Alls greiddu 2.289 atkvæði í prófkjörinu en gild atkvæði voru 2.233.
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, 1.347 atkvæði í fyrsta sæti.
- Haraldur Benediktsson, 1.061 atkvæði í 1.-2. sæti.
- Teitur Björn Einarsson, 1.190 atkvæði í 1.-3. sæti.
- Sigríður Elín Sigurðardóttir, 879 atkvæði í 1.-4. sæti.
Eins og áður segir hlaut Þórdís 60% atkvæða í 1. sæti en Haraldur 35%. Bæði sóttust eftir 1. sætinu. Af heildaratkvæðum fékk Þórdís 85%, Teitur Björn, sem hafnaði í 3. sæti, fékk 62% og Haraldur fékk 61%.