„Bráðefnileg söngkona með sterka Skagatengingu bræðir hjörtu með „Tenn Lys“


Eins og áður hefur komið fram hefur verkefnið „Skaginn syngur inn jólin“ farið í útrás til Noregs – nánar tiltekið í bænum Florø á vesturströnd Noregs. Í bænum búa um 12.000 manns og þar á meðal er sjúkraflutningamaðurinn söngelski Jón Valur Ólafsson.

Skagamaðurinn fylgist vel með því sem er að gerast í gamla heimabænum og verkefnið Skaginn syngur inn jólin heillaði Jón Val upp úr skónum.

Jón Valur tók þessa hugmynd frá gamla heimabænum og útfærði með norskum vinum sínum í Florø. Dóttir Jóns Vals, Maren Ýr Jónsdóttir, tekur þátt í þessu skemmtilega verkefni ásamt föður sínum. Hér má heyra Maren Ýr syngja lagið Tenn Lys.

„Það er ekkert leyndarmál að ég er bara að herma eftir þessu frábæra verkefni á Akranesi. Ég bar þetta undir hóp af metnaðarfullu tónlistarfólki hér í Florø. Það voru allir til í að prófa þetta. Við fórum í fyrirtæki til þess að fjármagna þetta verkefni og skelltum okkur í þetta,“ segir Jón Valur en hann tók sjálfur þátt með laginu Desembervind sem hefur áður verið til umfjöllunar hér á Skagafréttum.

„Hér búa um 12.000 manns og það var mjög einfalt að fá listafólk og söngvara til að taka þátt. Fólki hér í Florø þykir þetta mjög spennandi. Ég er að stýra þess ásamt Eirik Molnes Husabø sem samdi lagið sem ég syng. Við tókum þetta upp í menningar – og tónlistarsmiðju sem hann er í forsvari fyrir og heitir Husabula Kulturscene. Bæjarblaðið okkar, Firdaposten, birtir síðan útkomuna á vefsíðu sinni og við deilum þessu áfram á samfélagsmiðlana,“ segir Jón Valur Ólafsson en lagið hans er hér fyrir neðan ásamt öllum lögunum sem hafa nú þegar farið í loftið í Florø.