
Móttaka fyrir pappír og plast fyrir íbúa á Akranesi verður framvegis í móttökustöð Gámu í Höfðaseli. Og ekki verður ráðist í stækkun og endurbætur á grenndarstöðinni við Dalbraut.
Grenndargámar fyrir pappír og plast sem nú eru staðsettir við Bíóhöllina, Byggðasafnið og Dalbraut verða fjarlægðir. Gámar fyrir málma og gler verða áfram á þessum svæðum þar til að annað verður ákveðið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað sem barst skömmu eftir fund bæjarstjórnar fyrr í dag.
Nánar á vef Akraneskaupstaðar.
Eins og áður hefur komið fram á vef Skagafrétta hafði Akraneskaupstaður hug á því að fækka grenndarstöðvum úr þremur í eina – sjá hér á vef Skagafrétta. Og byggja átti upp eina öfluga mótttökustöð við Dalbraut – en íbúar á því svæði mótmæltu harðlega þeim áformum – sjá hér á vef Skagafrétta.








