
Íbúar við Esjuvell og Dalbraut hafa áhyggjur af fyrirhugaðri staðsetningu á grenndarstöð við Dalbraut/Esjuvelli – en Akraneskaupstaður hefur ákveðið að sameina þrjár grenndarstöðvar bæjarsins í eina. Þetta kemur fram í formlegu erindi til Skipulags – og umhverfisráðs.
Nánar í þessari frétt á vef Skagafrétta.
Í bréfinu kemur fram að mikið ónæði sé nú þegar frá grenndarstöð sem er staðsett á bílastæði norðan við bókasafn Akraness. Íbúarnir benda á að með sameiningu verði bílaumferð mun meiri en áður ásamt meiri ljós – og hljóðmengun.

Telja íbúarnir að slík starfssemi eigi ekki heima í næsta nágrenni við rótgróna íbúabyggð. Bent er á aðra valkosti varðandi staðsetningu og eru Kalmansvellir nefndir sem lausn.
Nánar í bréfinu sem er hér fyrir neðan,







