Knattspyrnufélag ÍA auglýsti nýverið eftir umsóknum um spennandi starf á skrifstofu félagsins. Um er að ræða starf verkefnastjóra – og í auglýsingunni kemur m.a. að fram að viðkomandi þurfi að hafa brennandi áhuga á fótbolta.
Starfið er fjölbreytt og lítur að öllum þáttum starfsemi Knattspyrnufélags ÍA.
Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í samstarfi við starfsmenn félagsins, leikmenn, iðkendur, foreldra, félagsmenn og stjórn.
Umsækjendur þurfa að geta unnið sveigjanlegan vinnutíma vegna leikja og mótahalds, brenna fyrir sportið og tilbúnir að starfa í fjölbreyttu umhverfi fótboltans.
Nauðsynlegt er að hafa búsetu á Akranesi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Halda utan um skráning og innheimtu æfinga- og félagsgjalda KFÍA
- Umgjörð og framkvæmd heimaleikja meistaraflokka
- Tryggja aðföng
- Vefsala
- Starfa með nefndum/ráðum
- Norðurálsmótið
- Viðburðir
- Samfélagsmiðlar og markaðsmál
- Ýmis dagleg umsýsla
Menntunar og hæfniskröfur:
- Góð tölvukunnátta
- Frumkvæði
- Áhugi á fótbolta
Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst. Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri ([email protected]). Umsóknir ásamt ferilskrá berist eigi síðar en 27. maí í gegnum ráðningakerfi á www.alfred.is.