Eins og áður hefur komið fram á vef Skagafrétta komst karlalið ÍA í 16-liða úrslit Mjólkurbikarkeppni KSÍ í gær með 5-3 sigri gegn Sindra á Höfn í Hornafirði.
Leikurinn fór fram á heimavelli Sindra sem leikur í fjórðu efstu deild eða 3. deild Íslandsmótsins en ÍA er í Bestu deildinni – þeirri efstu.
Þetta var í fyrsta sinn sem liðin mætast í mótsleik utanhúss
Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leiknum.
ÍA fékk að hafa fyrir hlutunum á Höfn í Hornafirði í gærkvöld. Skagamenn unnu þó lið Sindra, 5-3 í miklum markaleik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta. Mörkin má sjá hér. pic.twitter.com/fOXbXExxOg
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 25, 2022
Heimamenn komust yfir á 9. mínútu með marki frá Abdul Bangura.
Steinar Þorsteinsson jafnaði metin fyrir ÍA undir lok fyrri hálfleiks og staðan var jöfn í hálfleik. Sorie Barrie kom Sindra yfir á ný með marki á 52. mínútu og Gunnar Orri Aðalsteinsson, leikmaður Sindra, setti boltann í eigið mark tíu mínútum síðar og jafnaði metin fyrir ÍA.
Kaj Leo Í Bartalstovu kom ÍA í 3-2 á 67. mínútu og Guðmundur Tyrfingsson bætti við fjórða markinu á 79. mínútu, staðan 4-2 fyrir ÍA.
Ivan Eres hleypti spennu í leikinn tveimur mínútum síðar með þriðja marki Sindra en Gísli Laxdal Unnarsson tryggði sigurinn hjá ÍA með fimmta marki liðsins fjórum mínútum fyrir leikslok.
Eins og áður segir er þetta í fyrsta sinn sem liðin eigast við utanhúss en eina viðureign félaganna fyrir leikinn í kvöld var á Íslandsmótinu innanhúss árið 2004 þar sem að ÍA sigraði 5-2.
Sindri er í fjórðu efstu deild, 3. deild, en liðið mætti Kára nýverið þar sem að leikurinn endaði með jafntefli 1-1. Káramenn mæta stórliði FH á morgun, miðvikudag á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.
Karlalið ÍA hefur sigrað 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ en KR er sigursælasta liðið í keppninni með 14 titla og Valur er í öðru sæti með 11 titla.