Knattspyrnufélag ÍA tilkynnti í dag að framkvæmdastjóri félagsins Geir Þorsteinsson væri að hætta störfum.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Knattspyrnufélag ÍA og Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri félagsins hafi komist að samkomulagi um að Geir láti af störfum fyrir félagið á næstunni.
Geir mun verða félaginu innan handar næstu mánuði. Stjórn félagsins þakkar Geir kærlega fyrir vel unnin störf.
Geir var ráðinn sem framkvæmdastjóri KFÍA í lok mars árið 2020.
Hann tók þá við starfinu af Sigurði Þór Sigursteinssyni.
Geir hefur mikla reynslu á þessu sviði en hann hefur m.a. verið framkvæmdastjóri KSÍ um margra ára skeið.
Hann var formaður KSÍ á árunum 207-2017. Hann hefur einnig gegnt nefndarstörfum fyrir UEFA og FIFA.