Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra stefnir á að opna starfstöð á Sementsreitnum

Guðlaug­ur Þór Þórðar­son, um­hverf­is-, orku-, og lofts­lags­ráðherra, undirritaði í síðustu viku viljayfirlýsingu við Akra­nes­kaupstað um að stuðla að því að hluti starfstöðva stofn­an­a ráðuneytisins verði á Mána­götu 20, á svo nefndum Sementsreit. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Akraneskaupstaður áformar endurbyggingu reitnum og er stefnt að því að þar rísi bygging sem rúmar ráðhús Akraneskaupstaðar og mögulega fleiri stofnanir sveitarfélagsins. 

Fyrr í vikunni undirrituðu Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, ásamt Haraldi Benediktssyni, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, sambærilega viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu Sementsreits á Akranesi fyrir starfsemi ríkis og sveitarfélagsins.

Fyrir liggur að þörf er á að finna nýja aðstöðu fyrir stofnanir umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins á Akranesi og lýsir ráðuneytið, með yfirlýsingu sinni áhuga, í samvinnu við stjórnendur viðkomandi stofnana, á að leigja aðstöðu í nýrri byggingu við Mánabraut 20. Gert er ráð fyrir að unnið verði að verkefninu í samvinnu við fleiri, m.a. önnur ráðuneyti og Framkvæmdasýslu – ríkiseignir.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Eitt af markmiðum í vinnu við stofnanabreytingar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins undanfarin tvö ár er að fjölga störfum á landsbyggðinni samhliða upp­bygg­ingu öflugra og eft­ir­sókn­ar­verðra vinnustaða. Á grundvelli viljayfirlýsingar þessarar verður hafið samtal um starfstöðvar opinberra stofnana á Akranesi.“

Sjá einnig í þessari frétt: 

Viðamikil uppbygging fyrirhuguð á Mánabraut – ráðhús, leiguhúsnæði og ný heilsugæslustöð.

 

Frá undirritun viljayfirlýsingar nýverið. Mynd/stjórnarráðið.