Káramenn á toppnum í deildinni og í 8-liða úrslitum Fótbolta.net bikarsins

Káramenn hafa staðið sig vel á Íslandsmótinu í knattspyrnu og Fótbolti.net bikarsins.

Kári leikur í átta liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins á útivelli gegn liði Tindastóls – og fer leikurinn fram á Sauðárkróki 6. ágúst. 

Liðið er í efsta sæti 3. deildar Íslandsmótsins eftir 13 umferðir. Kári er með 30 stig og fjórum stigum fyrir ofan Árbæ sem er í öðru sæti. 

Undanúrslitin fara fram 21. september og úrslitaleikurinn er á Laugardalsvelli þann 27. september. 

 

Liðin sem leika í 8-liða úrslitum eru: 

Selfoss – Haukar

Augnablik – KFA

Vængir – Árbær

Tindastóll – Kári