Mikil eftirspurn eftir byggingalóðum á Akranesi

Mikil eftirspurn er eftir byggingalóðum á Akranesi. 

Alls bárust 19 umsóknir um 8 lóðir sem auglýstar voru nýverið. 

Um er að ræða lóðir í Skógarhverfi og Suðurgötu – nánar í auglýsingunni hér fyrir neðan. 

Bæjaráð Akraness hefur samþykkt að sérstakur úthlutunarfundur verði fimmtudaginn 26. september – og hefst fundurinn kl. 15:00. 

Á fundinum verður fulltrúi frá sýslumannsembættinu sem mun tryggja að allt ferlið fari fram eftir settum reglum