Skagamenn bikarmeistarar í 2. flokki karla í knattspyrnu

ÍA og Breiðablik áttust við í gær í úrslitaleik bikarkeppni 2. flokks karla en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. Skagamenn gerðu sér lítið fyrir og lögðu Blika 3-2 í hörkuleik og er ÍA því bikarmeistari 2024 í 2. flokki karla.

Jón Breki Guðmundsson kom ÍA í 1-0, og þannig var staðan í hálfleik. Börkur Bernharð Sigmundsson skoraði á ný fyrir ÍA og kom liðinu í 2-1 í síðari hálfleik og Axel Freyr Ívarsson kom ÍA í 3-1 áður en Blikar minnkuðu muninn í 3-2.