Fjölmenni á vel heppnuðu Landsmóti Samfés á Akranesi

Landsmót Samfés og Landsþing ungs fólks fór fram um nýliðna helgi á Akranesi.

Um 450 tóku þátt, unglingar á aldrinum 13-16 ára og starfsfólk frá 76 félagsmiðstöðvum víðsvegar að af landinu komu saman.

Meðal þess sem kom fram á þinginu er að er að ungt fólk telur mikilvægt að auka fjármagn til reksturs félagsmiðstöðva og ungmennahúsa. Auk þess að fjölga þurfi ungmennahúsum um land allt og auka sýnileika þeirra.

Á dagskrá var kosning í Ungmennaráð Samfés, ball, fjölbreyttar valdeflandi umræðu- og afþreyingasmiðjur og Landsþing ungs fólks.

Á Landsþinginu hefur ungt fólk af öllu landinu tækifæri til að koma sínum hugmyndum, skoðunum og ábendingum er varða málefni ungs fólks á framfæri.

Með virkri lýðræðislegri og aukinni samfélagslegri þátttöku ungs fólks er verið að tryggja að rödd þeirra berist ráðamönnum. Auk þess er rík áhersla á mikilvægi þess að hitta jafnaldra sína, kynnast nýju fólki og að allir skemmti sér sem best.

Markmiðið með Landsmóti Samfés, sem nú var haldið í 33. sinn, er að auka sýnileika á mikilvægi þátttöku barna og ungmenna um allt land, hvetja unglinga til lýðræðislegrar þátttöku, skapa vettvang sem eykur samfélagslega virkni, hvetja þau til að taka afstöðu og segja sína skoðun á málefnum sem varða þau.

Málefnin sem tekin voru fyrir á Landsþingi voru ákveðin og skipulögð af Ungmennaráði Samfés.

Þar eru lýðræðisleg vinnubrögð og valdefling allsráðandi. Á landsþingi í ár var lögð áhersla á heilsu, menntamál, félagsmiðstöðvar og ungmennahús, efnishyggju, ofbeldi og fíkn.

Athygli vekur að margir þátttakendur töldu sig ekki vera nægilega vel undirbúin fyrir nýtt skólastig við lok grunnskóla. Þau vilja fjölbreyttari kennsluhætti, þykir einkunnakerfi ekki nægilega lýsandi fyrir árangur og vilja að framhaldsskólinn verði lengdur aftur í 4 ár.

Þátttakendur telja vopnaburð algengan en óeðlilegan og leggja áherslu á mikilvægi þess að fræða börn og ungmenni um alvarleika ofbeldis og mikilvægi þess að tilkynna það svo allir hlutaðeigandi fái viðeigandi aðstoð.