Fjölga á hjúkrunarrýmum um 40% á Dvalarheimilinu Höfða

Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Heilbrigðisráðuneytið skrifuðu nýverið undir viljayfirlýsingu um stækkun Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi. 

Með yfirlýsingunni er stefnt að því að fjölga hjúkrunarrýmum um 29 og er það um 40% stækkun. Viljayfirlýsingin er með fyrirvara um fjárveitingu til verksins.

 

Það voru Andrea Ýr Arnardóttir oddviti Hvalfjarðarsveitar, Einar Brandsson formaður stjórnar Höfða, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi sem undirrituðu yfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélaganna og heilbrigðisráðuneytisins.