Minningarstund í Akraneskirkju á Alþjóðlegum degi barnamissis

Í tilefni af Alþjóðlegum degi barnamissis verður minningarstund í Akraneskirkju – þriðjudaginn 15. október. 

Minningarstundin hefst kl. 20 og er opin öllum. 

Séra Þráinn Haraldsson leiðir stundina og Guðrún Árný syngur. 
Þetta kemur fram í tilkynningu sem er hér fyrir neðan.