Hér getur þú séð dagskrá Vökudaga 2024

Menningarhátíðin Vökudagar fara fram á Akranesi dagana 24. október til 3. nóvember 2024. Hátíðin fór fyrst fram árið 2002 og er hátíðin í ár sú 24. í röðinni. 

Vökudagar hafa farið vaxandi ár hvert.

Að hátíðinni stendur hópur listafólks og menningarunnenda frá Akranesi sem í samstarfi við Akraneskaupstað skapa öfluga og fjölskrúðuga viðburði þar sem fjölbreytt listform og menning fá að njóta sín.

Það ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi og í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar eru íbúar á Akranesi og gestir hvattir til að taka þátt.