Einar Margeir Íþróttamanneskja ársins 2024 á Akranesi

Einar Margeir Ágústsson, sundmaður, var kjörinn Íþróttamanneskja ársins 2024 hjá Íþróttabandalagi Akraness.

Kjörinu var lýst þann 6. janúar og var þetta í 50. sinn sem kjörið fer fram. Þetta er annað árið í röð sem Einar Margeir er efstur í þessu kjöri.

 

Árið 2024 var frábært ár hjá honum í sundlauginni og sýndi þar að hann er meðal bestu sundmanna á Íslandi. Alls vann hann til níu verðlauna á Íslandsmeistaramótum og náði þeim árangri að verða yngsti íslendingurinn til þess að synda undir 2.10,00 mín í 200 m bringusundi í 25 m laug.

Einar keppti á Evrópumeistarmóti fullorðinna í 50 m laug í júni og bætti sig í öllum sínum sundum þar. Hann náði jafnframt lágmörgum inn á Heimsmeistaramót fullorðinna í 25 m laug sem haldið var í Budapest í desember síðast liðin. Á HM náði hann flottum bringusundsspretti í boðsveit Íslands, en hann synti þá á tímanum 57,97 sek og einungis Anton Sveinn Mckee sundmaður íslands síðustu ár, hefur synt á betri tíma. Til hamingju Einar Margeir með frábæran árangur og tililinn Íþróttamanneskja Akraness 2024

Knattspyrnumaðurinn Viktor Jónsson varð annar og fimleikamaðurinn Mattías Bjarmi Ómarsson varð þriðji.

Ríkharður Jónsson, knattspyrnumaður, var sá fyrsti sem fékk titilinn árið 1965. Sjö ára hlé var á kjörinu og sundmaðurinn Guðjón Guðmundsson var kjörinn árið 1972 – sama ár og hann var kjörinn Íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna. Aftur var gert hlé á kjörinu fram til ársins 1977 og hefur kjörið farið fram árlega síðustu 48 ár.

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir hefur oftast við kjörin Íþróttamaður Akraness eða 7 sinnum alls. Sundkonurnar og fyrrum Olympíufarar, Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir og Ragnheiður Runólfsdóttir, eru næstar í röðinni með 6 titla. Ragnheiður var kjörin Íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna árið 1991. Guðjón Guðmundsson og Ragnheiður eru einu iðkendurnir úr röðum ÍA sem hafa fengið þá nafnbót.

Frá árinu 1965 hefur íþróttafólk úr 7 mismunandi íþróttagreinum fengið flest atkvæði í kjörinu á Íþróttamanni Akraness. Sundfólk hefur 23 sinnum verið efst, kylfingar í 11 skipti, og knattspyrnufólk 10 sinnum. Árið 1977 var Jóhannes Guðjónsson kjörinn Íþróttamaður Akraness fyrir afrek sín í tveimur íþróttagreinum, badminton og knattspyrnu.

  • Sund 23 titlar
  • Golf 11 titlar
  • Knattspyrna 10 titlar
  • Kraftlyftingar 3 titlar
  • Hestamennska 2 titlar
  • Karate 1 titlar
  • Badminton 1 titlar

Íþróttamenn Akraness frá upphafi:

Ártal, nafn, fjöldi titla og fjöldi titla íþróttagreinar.

2024 Einar Margeir Ágústsson (2) sund (23)
2023: Einar Margeir Ágústsson (1), sund (22.)
2022: Kristín Þórhallsdóttir, (3) kraftlyftingar (3).
2021: Kristín Þórhallsdóttir, (2) kraftlyftingar (2).
2020: Kristín Þórhallsdóttir, (1) kraftlyftingar (1).
2019: Jakob Svavar Sigurðsson, (2) hestamennska (2).
2018: Valdís Þóra Jónsdóttir (7) golf (11).
2017: Valdís Þóra Jónsdóttir, (6) golf (10).
2016: Valdís Þóra Jónsdóttir, (5) golf (9).
2015: Ágúst Júlíusson, (2) sund (21)
2014: Ágúst Júlíusson, (1) sund (20).
2013: Jakob Svavar Sigurðsson, (1) hestamennska (1).
2012: Inga Elín Cryer, (2) sund (19).
2011: Inga Elín Cryer, (1) sund (18).
2010: Valdís Þóra Jónsdóttir, (4) golf (8).
2009: Valdís Þóra Jónsdóttir, (3)golf (7).
2008: Valdís Þóra Jónsdóttir, (2) golf (6).
2007: Valdís Þóra Jónsdóttir, (1) golf (5).
2006: Eydís Líndal Finnbogadóttir, (1) karate.
2005: Pálmi Haraldsson, (1) knattspyrna (10).
2004: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (6) sund (17).
2003: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (5) sund (16).
2002: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (4) sund (15).
2001: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (3) sund (14).
2000: Birgir Leifur Hafþórsson, (3) golf (4).
1999: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (2) sund (13).
1998: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (1) sund (12).
1997: Þórður Emil Ólafsson, (1) golf (3).
1996: Birgir Leifur Hafþórsson, (2) golf (2).
1995: Sigurður Jónsson, (2) knattspyrna (9).
1994: Sigursteinn Gíslason, (1) knattspyrna (8).
1993: Sigurður Jónsson, (1) knattspyrna (7).
1992: Birgir Leifur Hafþórsson, (1) golf (1).
1991: Ragnheiður Runólfsdóttir, (6) sund (11),
*(Íþróttamaður ársins á Íslandi).
1990: Ragnheiður Runólfsdóttir, (5) sund (10).
1989: Ragnheiður Runólfsdóttir, (4) sund (9).
1988: Ragnheiður Runólfsdóttir, (3) sund (8).
1987: Ólafur Þórðarson, (1) knattspyrna (6).
1986: Ragnheiður Runólfsdóttir, (2) sund (7).
1985: Ragnheiður Runólfsdóttir, (1) sund (6).
1984: Bjarni Sigurðsson, (1) knattspyrna (5).
1983: Sigurður Lárusson, (1) knattspyrna (4).
1982: Ingi Þór Jónsson, (2) sund (5).
1981: Ingólfur Gissurarson, (2) sund (4).
1980: Ingi Þór Jónsson, (1) sund (3).
1979: Ingólfur Gissurarson, (1) sund (2).
1978: Karl Þórðarson, (1) knattspyrna (3).
1977: Jóhannes Guðjónsson, (1) badminton (1) / knattspyrna (2).
1972: Guðjón Guðmundsson, (1) sund (1),
(*Íþróttamaður ársins á Íslandi).
1965: Ríkharður Jónsson, (1) knattspyrna (1).