Tæplega 1000 íbúar á Akranesi með erlent ríkisfang

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2024.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 64,9% niður í 5,7% þó að jafnaði er hlutfallið um 19,8% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru 64,9% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 704 erlendir ríkisborgarar af alls 1.084 íbúum hreppsins. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 44,9% og Bláskógabyggð með 36,4% íbúa.

Á Akranesi er hlutfallið 11,5% en þann 1. desember 2024 voru 8.460 íbúar á Akranesi, þar af 970 erlendir ríkisborgarar. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2024.