Madison tekur tvö ár til viðbótar með kvennaliði ÍA í knattspyrnu

Madison Brooke Schwartzenberger hefur skrifaði undir samning við Knattspyrnufélag ÍA, og mun hún leika með liðinu út árið 2026. 

Bandaríski leikmaðurinn kom til ÍA í fyrra og var hún í stóru hlutverki í Lengjudeildinni.

ÍA endaði í 5. sæti deildarinnar í fyrra en Schwartzenberger skoraði 3 mörk í 20 leikjum. 

Schwartzenberger er fædd 2002 og spilar sem varnarsinnaður miðjumaður.  Hún lék með University of South Florida í háskólaboltanum áður en hún kom til ÍA.