Viðreisn tilkynnti í dag framboðslista flokssins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar sem fram fara í maí. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram á Akranesi. 

Jón Guðni Guðmundsson, burðarþolssérfræðingur og brúarhönnuður, skipar oddvitasætið. Helga Björg Þrastardóttir, matreiðslumeistari er í öðru sæti, Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri er í þriðja sæti og Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona er í fjórða sæti.

„Ég hef mikla trú á því að Viðreisn á Akranesi muni koma inn af krafti í bæjarmálin með lausnamiðaða nálgun og jákvæðni að leiðarljósi,“ er haft eftir Jóni Guðna í tilkynningu. 

„Við ætlum aðs styrkja rekstur sveitarfélagsins, tryggja áfram góð skilyrði fyrir fjölskyldufólk á svæðinu og hlúa að grunnþjónustunni. Húsnæðismál, skipulagsmál og atvinnumál eru grunnstoðir samfélagsins sem mikilvægt er að samþætta með öllum öðrum málaflokkum. Á komandi kjörtímabili eru mikil tækifæri fólgin í því að sækja fram fyrir Akranes á öllum sviðum,“ segir Jón Guðni. 

Listi Viðreisnar er þannig skipaður:

1. Jón Guðni Guðmundsson, burðarþolssérfræðingur
2. Helga Björg Þrastardóttir, matreiðslumeistari
3. Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri
4. Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona
5. Guðmundur Claxton, tölvunarfræðingur
6. Tinna Steindórsdóttir, grunnskólakennari
7. Ellert Hjelm, verslunarmaður
8. Aldís Ylfa Heimisdóttir, verkefnastjóri og knattspyrnuþjálfari
9. Alexander Aron Guðjónsson, framkvæmdastjóri
10. Hugrún Eva Valdimarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
11. Jóel Þór Jóhannesson, stuðningsfulltrúi og markaðsfulltrúi
12. Drífa Dröfn Siggerðardóttir, verslunareigandi
13. Sigfús Agnar Jónsson, vélfræðingur og vaktstjóri
14. Ragnheiður Ásta Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri umbóta
15. Ýmir Hjálmsson, háskólanemi
16. Elírós Kjaran Zar, kvikmyndagerðakona
17. Jóhannes Finnur Halldórsson, eldri borgari
18. Edit Ómarsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu og varaþingmaður