Sunna Rún og félagar með tvo sigra og eitt tap með U-17 ára landsliðinu

Skagakonan Sunna Rún Sigurðardóttir var fyrirliði U-17 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu í þremur æfingaleikjum liðsins sem fram fóru í Portúgal nýverið. 

Ísland sigraði Wales 3-0 í lokaleik æfingamótsins. Áður hafði Ísland lagt Portúgal að velli 2-1 en leikurinn gegn Dönum tapaðist 5-3. 

Næsta verkefni liðsins er milliriðill í undankeppni EM 2025 þar sem Ísland mætir Belgíu, Spáni og Úkraínu dagana 8.-14. mars.

Aldís Ylfa Heimisdóttir, frá Akranesi, var nýlega ráðin sem þjálfari U-17 ára landsliðsins en Þórður Þórðarson, einnig frá Akranesi, stýrði liðinu í þessu verkefni.