Verkfall boðað í tveimur skólum á Akranesi frá og með 1. febrúar

Verkfall hjá kennarastétt landsins hefjast að öllum líkindum laugardaginn 1. febrúar að því gefnu að samningar náist ekki fyrir þann tíma. 

Verkfallið nær til fjórtan leikskóla og sjö grunnskóla – þar af eru tveir skólar á Akranesi. Ekki hefur verið gefið út hvort kennarar í tónlistar – og framhaldsskólum landsins leggi niður störf. 

Fyrirhuguðu verföll leikskólakennara eru ótímabundin. Teigasel á Akranesi er á meðal þeirra leikskóla þar sem að verkfall hefur verið boðað.  

Verkfall grunnskólakennara eru tímabundin. Frá 1.-21. febrúar í þremur skólum og 1. febrúar – 26. febrúar í fjórum skólum – og er Grundaskóli á Akranesi einn þeirra þar sem að kennarar leggja niður störf 1.-26. febrúar. 

Leikskólarnir sem um ræðir eru: 

  • Leikskóli Seltjarnarness
  • Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ
  • Leikskólinn Drafnarsteinn í Reykjavík
  • Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki
  • Leikskóli Snæfellsbæjar
  • Hulduheimar á Akureyri
  • Höfðaberg í Mosfellsbæ
  • Lundaból í Garðabæ
  • Lyngheimar í Reykjavík
  • Lyngholt á Reyðarfirði
  • Óskaland í Hveragerði
  • Rauðhóll í Reykjavík
  • Stakkaborg í Reykjavík
  • Teigasel á Akranesi

Tímabundin verkföll hafa verið boðið í eftirfarandi grunnskólum:

  • Árbæjarskóli í Reykjavík (1.-21. febrúar).
  • Garðaskóli í Garðabæ (1.-21. febrúar).
  • Heiðarskóli í Reykjanesbæ (1.-21. febrúar).
  • Egilsstaðaskóli á Egilsstöðum (1.-26. febrúar).
  • Engjaskóli í Reykjavík (1.-26. febrúar).
  • Grundaskóli á Akranesi (1.-26. febrúar).
  • Lindaskóli í Kópavogi (1.-26. febrúar).