Uppbygging búsetukjarnans við Skógarlund 42 hefur stöðvast vegna fjárskorts en þar var gert ráð fyrir búsetuúrræði fyrir fatlað fólk. 

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks á Akranesi fór yfir þetta mál á síðasta fundi sínum og telur ráðið að mörgum spurningum sé ósvarað varðandi þetta verkefni. 

Fjártjón Akraneskaupstaðar gæti verið um 50 milljónir kr. og verkefnið sé komið á byrjunarreit eftir fjögurra ára undirbúning. 

Ráðið leggur til að gerð verði rannsókn á stjórnsýslunni sem tengist þessu verkefni. 

Fjallað hefur verið um tafir á þessu verkefni á Skagafréttir – sjá þessar tvær fréttir fyrir neðan.  

Verktaki lýsir yfir vonbrigðum með tafir en telur að ábyrgðin liggi einnig hjá Akraneskaupstað

Lýsa yfir vonbrigðum með tafir á uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk

Fundargerð Notendaráðsins er í heild sinni hér fyrir neðan: 

Fyrir tekið:

  1. 2303217 – Brú hses – Skógarlundur 42, stofnframlag vegna íbúðakjarna 2023 


Staðan á uppbyggingu búsetukjarnans við Skógarlund 42. Kristinn Hallur  Sveinsson formaður velferðar- og mannréttindaráðs, Einar Brandsson og Aníta  Eir Einarsdóttir ráðsmenn í velferðar- og mannréttindaráði mæta til umræðna við  notendaráð um málefnið. 


Fram kom að bygging íbúðakjarnans hafi stöðvast vegna fjárskorts  framkvæmdaaaðila, Leigufélagsins Brúar hses og velferðar- og mannréttindaráð  myndi ekki gera samning um leigu íbúða í kjarnanum líkt og fyrirhugað hafði  verið. Væri stofnframlag Akraneskaupstaðar, rúmar 50 milljónir króna að öllum  líkindum glatað og sömu sögu væri að segja um stofnframlag

Húsnæðis- og  mannvirkjastofnunar að fjárhæð tæpar 70 milljónir króna. Einnig kom fram að  húsið lægi sem stendur undir skemmdum.  


Notendaráð harmar mjög þá stöðu sem upp er komin í málinu. Uppbygging  íbúðakjarnans sem hefur verið í undirbúningi í rúm fjögur ár er nú að nýju á  byrjunarreit með tilheyrandi röskun og óvissu fyrir búsetuúrræði fatlaðs fólk á  Akranesi að ógleymdu því mikla fjártjóni sem virðist blasa við bæjarfélaginu.  


Notendaráðið telur mörgum spurningum ósvarað vegna þessa verkefnis, bæði í  aðdraganda þess og einnig á meðan á framkvæmdum stóð, ekki síst vegna  óljósra upplýsinga um stöðu málsins. Ráðið leggur því eindregið til við  Bæjarstjórn Akraness að nú þegar fram fari stjórnsýslurannsókn á verkefninu í  heild sinni.

Meðal atriða sem ráðið telur nauðsynlegt að varpa ljósi á má nefna  eftirfarandi: 

  1. Aðdragandi pólitískrar stefnumótunar um byggingu íbúðakjarnans.  2. Vinnulag og ákvörðun um lóðarval vegna byggingarinnar.  
  2. Vinnureglur vegna vals á verktaka vegna byggingarinnar.  
  3. Hvaða mat fór fram á þeim kostum sem til greina komu í eignar- og  rekstrarformi íbúðakjarnans.  
  4. Hvaða breytingar urðu á útliti, innra skipulagi og efnisvali hússins á  undirbúnings- og byggingartíma.  
  5. Hvernig var eftirliti háttað af hálfu Akraneskaupstaðar á framkvæmdatímanum,  annars vegar til þess að tryggja mikla fjárhagslega hagsmuni sveitarfélagsins og  hins vegar almennt byggingareftirlit. 
  6. Hvaða kosti hefur sveitarfélagið í núverandi stöðu og hvernig voru þeir metnir.