
Skagakonan Sandra Margrét Sigurjónsdóttir er nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs Coca – Cola á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Sandra Margrét hefur víðtæka reynslu á sviði fjármála og rekstrar framleiðslufyrirtækja í alþjóðlegu umhverfi. Hún hefur starfað hjá Marel undanfarin sex ár sem fjármálastjóri fiskiðnaðar og síðar sem yfirmaður greiningardeildar samstæðunnar, þar sem hún hafi gegnt lykilhlutverki í að móta og innleiða stefnu fyrir fjármálasvið fyrirtækisins.
„Áður en Sandra Margrét hóf störf hjá Marel gegndi hún starfi sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Landhelgisgæslu Íslands í 4 ár. Á árunum 2004-2013 starfaði Sandra Margrét hjá Norðuráli, fyrst sem deildarstjóri reikningshalds og síðar sem framkvæmdastjóri fjármála í 6 ár. Á þessum árum tók hún virkan þátt í að innleiða ferla og styðja við þreföldun framleiðslu álversins sem átti sér stað á þessu tímabili.
Sandra Margrét er með M.Sc gráðu í stjórnun og stefnumótun og Cand.oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni.