Akraneskaupstaður auglýsti nýverið eftir tilboðum um rekstur líkamsræktar í íþróttahúsi við Jaðarsbakka – „Bragginn“.  Samkvæmt heimildum Skagafrétta er töluverður áhugi á þessu verkefni og ætlar Akraneskaupstaður að leggja mat á þau tilboð sem berast. 

Skóla – og frístundaráð hefur skipað valnefnd sem hefur það hlutverk að leggja mat á tilboð í leigu á aðstöðu að Jaðarsbökkum 1, þar sem skal vera rekstur líkamsræktar.  

Alls eru sjö einstaklingar í nefndinni, þrír fulltrúar úr bæjarstjórn Akraness, og fjórir starfsmenn frá Akraneskaupstað. 

  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi, S – lista
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi, D-lista
  • Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúi, B-lista
  • Arnór Guðmundsson verkefnastjóri á skipulags- og umhverfissviði
  • Daníel S. Glad forstöðumaður íþróttamála og íþróttamannvirkja
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
  • Sigurður P. Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs

 

Akraneskaupstaður sendi nýverið út tilkynningu þar sem bærinn óskar eftir tilboðum í leigu á bragganum við Jaðarsbakka, þar sem stefnt er að rekstri öflugrar líkamsræktarstöðvar. Um er að ræða um 2.000 fermetra húsnæði sem losnar haustið 2025, þegar núverandi starfsemi flyst í nýtt íþróttahús á svæðinu.

Í tilkynningunni kemur fram að mikil eftirspurn sé eftir veglegri líkamsræktaraðstöðu á Akranesi, og því er skilyrði að rekstraraðili nýti húsnæðið undir slíka starfsemi. Markmiðið er að skapa aðlaðandi og fjölbreytta aðstöðu fyrir hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl sem þjónar þörfum íbúa svæðisins.

Í fundargerð bæjarstjórnar kemur fram að fyrirhugaðar breytingar á Jaðarsbakkasvæðinu séu enn á dagskrá – en gert er ráð fyrir innilaug þar sem að „Bragginn“ er staðsettur í dag. Fjármagn fyrir byggingu á nýrri sundlaug er ekki í fjárhagsáætlun bæjarsins út árið 2028.

Á næstunni verður nýtt íþróttahús tekið í notkun við Jaðarsbakka og þar er gert ráð fyrir nýrri lyftingaaðstöðu fyrir afreksíþróttir hjá ÍA.

Ekki er gert ráð fyrir að almenningur fái aðgengi að þeirri aðstöðu.

Íþróttakennsla í Grundaskóla mun alfarið færast yfir í nýja íþróttahúsið þegar það verður tilbúið og æfingar hjá þeim félögum sem hafa verið með aðstöðu í gamla húsinu fara einnig yfir í það nýja.

Aðstaða fyrir Klifurfélag Akraness verður ekki sett upp í gamla salnum – eins og rætt hafði verið um, og verður Klifurfélagið áfram með sína aðstöðu á Smiðjuvöllum.

Akraneskaupstaður hefur séð um rekstur á líkamsræktaraðstöðunni sem er til staðar á efri hæðinni í gamla íþróttahúsinu við Jaðarsbakka.

Íþróttabandalag Akraness byggði upp þá aðstöðu og sá um reksturinn í fjölmörg ár – en í fyrstu var þessi aðstaða fyrst og fremst ætluð fyrir iðkendur hjá ÍA.

Í mörg ár hefur þessi aðstaða verið opin fyrir almenning en eins og áður segir verður ekki boðið upp á líkamsræktaraðstöðu fyrir almenning í nýja íþróttahúsinu.