Skagakonan Ragnheiður Runólfsdóttir tekur við starfi sem yfirþjálfari hjá sundfélaginu Óðni á Akureyri – og hefur hún störf í sumar. Ragnheiður hefur áður verið yfirþjálfari félagsins en hún hefur starfað í Svíþjóð undanfarin ár. 

Í tilkynningu á heimasíðu félagsins segir: 

. „Ragga býr yfir mikilli reynslu af þjálfun en hún hefur starfað við sundþjálfun frá árinu 1992 og lengst af sem yfirþjálfari. Ragga er félaginu að góðu kunn þar sem hún sinnti þjálfun hjá Óðni á árunum 1996–1998 og svo aftur á árunum 2011–2019. Að undanförnu hefur hún starfað sem yfirþjálfari í Svíþjóð hjá Simklubben S02 í Gautaborg og hjá KBSS í Kungsbacka. Við í Sundfélaginu Óðni bjóðum Röggu hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til að vinna með henni að því að efla starfið enn frekar,“ segir í tilkynningunni. 

Ragnheiður var í fremstu röð á heimsvísu í sundíþróttinni þegar hún var uppi á sitt besta. Hún er fædd árið 1966 á Akranesi og hóf sinn sundferil í Bjarnalaug við Laugarbraut.

Ragnheiður er ein allra besta sundkona Íslands. Hún var kjörin var Íþróttamaður ársins 1991 af Samtökum íþróttafréttamanna og varð þar með önnur konan til að hreppa þá eftirsóttu nafnbót. 

Ragnheiður keppti á tvennum Ólympíuleikum á sínum tíma, í Seoul í Suður-Kóreu 1988 og í Barcelona á Spáni 1992.

  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?