Karlalið ÍA leikur í dag gegn KA á heimavelli í Bestu deildinni í knattspyrnu.

Leikurinn hefst kl. 17:00 og fer hann fram á aðalvellinum á Jaðarsbakka og er fyrsti leikur tímabilsins sem fram fer á Elkem vellinum. 

Töluverðar breytingar hafa verið gerðar varðandi aðkomu áhorfenda og í tilkynningu frá Knattspyrnufélaginu kemur eftirfarandi fram 

  • Tveir inngangar verða inn á svæðið á leikdegi. Aðrir verða lokaðir.
  • Einn á milli íþróttahúsanna, nýja og gamla
  • Einn við enda hallarinnar
  • Tvær sjoppur á svæðinu
  • Önnur sjoppan verður í hvíta gáminum við sundlaugina
  • Hin sjoppan verður í anddyri nýja íþróttahússins
  • Akraborgin leysir landfestar á ný
  • Knattspyrnufélagið hefur komið sér upp félagsaðstöðu í geymslu undir stóru tröppunum.
  • Þegar gott er í sjóinn er hægt að sitja úti á dekki
  • Svo þegar það verður veltingur og öldugangur er mögulega best að tilla sér bara inn í veitingasölu.
  • Enski Boltinn fyrir leik – Lille-Marseille eftir leik
  • Grillaðir hamborgarar og kaldir drykkir
    Tvö klósettsvæði
    – Annað við enda hallarinnar
    – Hitt inn af svölunum í nýja íþróttahúsinu
    Hlökkum til að sjá ykkur kæru Skagamenn, Áfram ÍA 💛🖤
  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?