Bílaumboðið Askja og Bílaverkstæði Hjalta hafa endurnýjað samning sinn um þjónustu á Akranesi. Ákvörðunin er hluti af einföldun reksturs og um leið vegna áherslu á fjárfestingu í aukinni þjónustu og aðstöðu hjá Bílaverkstæði Hjalta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öskju.

Askja mun samhliða loka starfsstöð sinni á Akranesi, sem opnuð var í apríl 2024 fyrir sölu á nýjum og notuðum bílum ásamt þjónustu fyrir bíla frá Öskju. „Við teljum farsælast að sinna þjónustu við viðskiptavini á Vesturlandi í gegnum traustan samstarfsaðila sem þegar hefur byggt upp aðstöðu og þekkingu á okkar vörumerkjum og þar starfar öflugur hópur bifvélavirkja, en auk þess er Askja þessa daganna að byggja upp tvö stór önnur verkefni á Krókhálsi og í Reykjanesbæ“ segir Viktor Elvar Viktorsson, rekstrarstjóri Öskju á Vesturlandi.

Starfsemi Öskju á Akranesi hefur verið til húsa að Innnesvegi 1 í húsnæði sem áður hýsti Bílvers. Húsnæðið eru í eigu Löðurs, sem hyggst opna þar bílaþvottastöð.

„Á þessari stundu teljum við ekki hagstætt að ráðast í byggingu nýs húsnæðis og hentugt húsnæði er ekki aðgengilegt í dag,“ bætir Viktor við.

Bílaverkstæði Hjalta hefur lengi verið traustur samstarfsaðili Öskju á Akranesi og flutti nýverið í glæsilega og vel búna aðstöðu við Smiðjuvelli. Með samstarfinu verður áfram boðið upp á þjónustu fyrir öll helstu vörumerki Öskju: Kia, Honda og Mercedes-Benz.

„Við hlökkum til að efla samstarfið við Öskju enn frekar og bjóða núverandi sem og nýjum viðskiptavinum upp á framúrskarandi þjónustu,“ segir Hilmir Hjaltason, þjónustustjóri hjá Bílaverkstæði Hjalta. „Við höfum fjárfest í tækjabúnaði og þjálfun starfsfólks sem tryggir faglega og góða þjónustu.“

Viðskiptavinir á Vesturlandi eiga áfram greiðan aðgang að sérhæfðum verkstæðum Öskju að Krókhálsi 11–13 í Reykjavík. Þar er boðið upp á fjölbreytta þjónustu, meðal annars bílaleigu á meðan þjónusta fer fram, sem og sjálfsafgreiðslu sem opin er allan sólarhringinn.

Sigurður Valgeir Eiðsson, sem sinnt hefur þjónustunni á Akranesi, mun taka við sem tæknimaður fyrir Kia atvinnubíla hjá Öskju í Reykjavík. Ný lína rafmagnssendibíla frá Kia verður frumsýnd síðar á árinu, og Sigurður tekur þátt í þeirri innleiðingu.

„Við þökkum kærlega öllum sem leituðu til okkar með kaup eða sölu á bílum. Við vonum að upplifunin hafi verið jafn góð fyrir viðskiptavini og hún hefur verið fyrir okkur. Bílasalan á Akranesi verður starfrækt til 1. júlí, og við eigum von á góðum lokaspretti í sölunni,“ segir Viktor að lokum.